Sleppa og fara á aðalsíðu

Húsgögn

Ritzy-sófi

Nútímalegur sófi með vönduðum smáatriðum sem býður upp á einstaklega þægilega sætisupplifun.

Eiginleikar

  • Hægt er að velja um tvær stærðir: tveggja eða þriggja sæta
  • Úrval áklæðis er að finna í mörgum litum og efnum, þar á meðal leðri
  • Sessur sem bjóða upp á DUX Pascal-gormatæknina
  • Baksessa með þéttri svampfyllingu fyrir framúrskarandi þægindi
  • Sætis- og bakhluti eru hannaðir með Pullmaflex-neti sem veitir langvarandi þægindi án þess að síga
  • Fætur úr ryðfríu stáli

Lýsing

Ritzy, sem hönnunarteymi DUX kynnti til sögunnar árið 2021, stendur undir nafni í hvívetna og færir heimilinu, skrifstofunni – eða hvoru tveggja – blæ af nútímalegum glæsileika. Með fallega hönnuðu, hallandi baki er þetta sófi sem verður áberandi þáttur í hvaða herbergi sem honum er komið fyrir í.

Ritzy er hinsvegar ekki bara innanhússskreyting. Hann hefur einnig verið vandlega hannaður til að veita bestu mögulegu vinnuvistfræðilegu þægindi og tryggja þannig hágæða slökun um alla framtíð. Sætissessurnar laga sig að sérstöku formi líkama þíns, þökk sé sömu Pascal-gormatækni og notuð er í DUX-rúmum. Baksessan er hins vegar fyllt með hágæða pólýúretansvampi (PU) sem hefur meiri þéttleika en hefðbundnar svampfyllingar, sem veitir aukin og varanlegri þægindi.

Ritzy-línan hefur verið hönnuð til að henta mismunandi rýmum og þörfum fjölskyldna, en í boði eru bæði tveggja og þriggja sæta sófar. Línan inniheldur einnig samsvarandi hægindastól, skemil og legubekk.

Mál

Size Breidd Dýpt Hæð Sætishæð
Two-seater 180cm 80cm 85cm 42cm
Three-seater 210cm 80cm 85cm 42cm

Niðurhal

Ritzy-sófi

Ritzy er hugarfóstur hönnunarteymis DUX, sæti sem endurspeglar 21. öldina og er fullkomið augnayndi á heimilinu eða öflugt og faglegt yfirbragð í fyrirtækinu. Fáanlegur sem tveggja eða þriggja sæta sófi.

  • Þriggja sæta sófi
  • DUX-gormakerfi

Sófar

Sérsníða

DUX-sófar fást með ýmsum tau- og leðuráklæðum. Eingöngu eru notuð fyrsta flokks efni í öllum verðflokkum. Við veljum af kostgæfni leður og tauáklæði sem eru vönduð, endast lengi, hnökra ekki eða verða snjáð, halda vel lit og eru framleidd á sjálfbæran hátt.

Finna verslun

Fleiri sófar

Yfirburðarhönnun

Hönnunarteymi DUX

Hönnunarteymi DUX trúir því staðfastlega að þau séu annað og meira en handverksfólk – þau eru vísindamenn sem skapa stílhrein og þægileg húsgögn.

Lesa meira um hönnunarteymið okkar

Fleiri húsgögn