Sleppa og fara á aðalsíðu

Rúm

DUX 30

Háþróaðasti rúmbotninn okkar, með hlutaskiptri hönnun sem býður upp á stillanleg þægindasvæði.

DUX 30

DUX 30 er afrakstur tveggja DUX-nýjunga: samfellt gormakerfi sem veitir sveigjanlegan stuðning og hlutaskipt hönnun með einstöku Pascal-kerfi sem gerir kleift að sérstilla hvora hlið rúmsins.

  • DUX-gormakerfi
  • OEKO-TEX
  • Pascal-kerfi
  • Sustainable Comfort

Eiginleikar

  • Gormadýna með náttúrulegum latexsvampi og tvöföldum gormum
  • Pascal-kerfi – sérsniðin þægindi fyrir fótleggi, mjaðmir og axlir
  • Tvö lög af gormum: annað lagið er með 9 cm gormum og hitt lagið er með 12 cm gormum
  • Innra þægindalag úr náttúrulegum efniviði sem hægt er að skipta um
  • Hæð dýnu er 32 cm
  • Ráðlögð hæð fóta: 20 cm, 23 cm eða 30 cm

Lýsing

DUX 30 er vinsælasta og vandaðasta rúmið okkar með heilli dýnu. Það er þekkt fyrir einstök þægindi og sameinar tvær DUX-uppfinningar. Annars vegar eru það einkaleyfisvarðir samfelldir gormar sem veita sveigjanlegan stuðning sem lagar sig að hreyfingum þínum á nóttunni. Hins vegar er það hlutaskipta Sustainable Comfort-hönnunin sem byggist á okkar rómaða Pascal-kerfi og gefur færi á að breyta rúminu án minnstu vandkvæða til að koma til móts við þarfir hvers og eins.

Pascal-kerfið getur samanstaðið af allt að sex gormaeiningum, allt eftir stærð rúmsins. Þeim er skipt á milli þriggja þægindasvæða til að veita sem bestan stuðning fyrir axlir, mjaðmir og fótleggi. Innan hvers svæðis er hægt að velja allt frá mjúku í mjög stíft og þannig aðlaga rúmið að óskum og þörfum hvers og eins.

Mál

Width (cm) Length (cm)
80cm 200cm
90cm 200cm
100cm 200cm
105cm 200cm
120cm 200cm
140cm 200cm
160cm 200cm
180cm 200cm
200cm 200cm
210cm 200cm
96,5cm 203cm
152cm 203cm
193cm 203cm
80cm 210cm
90cm 210cm
100cm 210cm
105cm 210cm
120cm 210cm
140cm 210cm
160cm 210cm
180cm 210cm
200cm 210cm
210cm 210cm
Name Width (inch) Length (inch)
Twin Long 38" 80"
Full 54" 75"
Queen 60" 80"
Cal. King 71" 83"
King 76" 80"

Niðurhal

Sérsniðið rúm

Við viljum að rúmið þitt sé þinn griðastaður. Þess vegna velur þú alla íhluti þess, allt frá dýnu, höfðagafli og yfirdýnu til fótanna. Gerðu DUX persónulegt!

Finna verslun Svona geturðu sérsniðið þitt rúm

Óviðjafnanleg þægindi

Leyndarmálið okkar hjá DUX er tækni. Markmið okkar er að tryggja besta hugsanlega svefn, með áherslu á rétta líkamsstöðu og bættan djúpsvefn. Við erum sífellt að þróa gormatæknina okkar og nýtum okkur þaulprófaðar tæknilausnir til að gera DUX-rúmin ótrúlega þægileg.

Nýsköpun DUX

Sjálfbært handverk

Sérlega endingargóð efni, framleidd samkvæmt ströngustu gæðakröfum um umhverfisáhrif og með sérsníðanlegum eiginleikum. Við höfum sjálfbærni að leiðarljósi á öllum framleiðsluþrepum hverrar vöru frá DUX. Endingartími húsgagnanna okkar og rúmanna byggir á stefnunni um að „Skipta út, endurnýja og endurbyggja“.

Sjálfbærni, gæði og mikil ending

Sjá einnig

Hlutaskipta svefnkerfið okkar

Fullkomin sérstilling

Sustainable Comfort-hönnunin er byggð á þremur mismunandi svefnþáttum og býður þér upp á óviðjafnanlega valkosti til að stilla stuðning rúmsins. Þetta kerfi gerir þér einnig kleift að uppfæra eða skipta um íhluti eftir því sem þarfir þínar breytast og endurnýja og auka þannig þægindi rúmsins í áratugi.

Sjá alla íhluti

DUX Sustainable Comfort

Nýsköpun frá okkur

Kynntu þér einstaklingsmiðaða svefnupplifun þar sem bæði vellíðan þín og náttúruvernd eru í fyrirrúmi. Nýjasta kynslóð hins rómaða DUX-rúms býður bæði upp á einstaklingsmiðað, hlutaskipt svefnkerfi sem hægt er að sérsníða og dásamlegan lúxus með náttúrulegum efniviði.

Skoðaðu öll rúm Kynntu þér Sustainable Comfort