Qingpu-hverfið, Sjanghaí, Kína
Ahn Luh Zhujiajiao
Staðsett í Zhujiajiao, í Qingpu-hverfinu í Sjanghæ, á stað sem er þrunginn mannkynssögu. Ahn Luh Zhujiajiao er gátt sem veitir aðgang að fortíðinni og er í tæplega 50 km fjarlægð frá miðborg Sjanghæ.
Þessi fallegi dvalarstaður er 600 ára gamalt dómshús sem hefur verið endurbyggt og var áður þekkt sem „Wu Feng Lou“. Húsið er frá Ming-tímabilinu og skartar meistaralegu handverki og listskreytingum í hverjum kima.
Gamla leikhúsið frá Quing-tímabilinu, sem er staðsett á lóðinni, er frábær staður til að upplifa kínverskar hefðir og menningu. Ahn Luh Zhujiajiao skartar glæsilegum einbýlishúsum með húsagörðum og einkagörðum sem eru sérstaklega hannaðir til að sameina fornar hefðir og andblæ samtímans. Mörg þessara húsa eru með upphituðum einkasundlaugum utandyra.
Hótelið býður einnig upp á margs konar þjónustu, svo sem veitingastaði með kínverskum/asískum mat, tapas-bar með kínversku yfirbragði, bókasafn, vindlabar, tai chi herbergi, hefðbundnar, kínverskar læknismeðferðir, Ahn Luh heilsulind, danssal án burðarstoða, fundarherbergi og sundlaugar bæði innandyra og utan.
Ahn Luh Zhujiajiao
505 Zhuhu Road, ZHujiajiao Town
Qingpu-hverfið, Sjanghaí
Kína
- Símanúmer
- +8613501666778
- Netfang
- zhujiajiao@ahnluh.com
- Vefsvæði
- www.ahnluh.com