Sleppa og fara á aðalsíðu

Stokkhólmur, Svíþjóð

Nobis Hotel Stokkhólmi

Í samtímalegum skilningi er lúxus ekki endilega íburður, skraut eða óhóf. Lúxus okkar tíma felst í áreynslulausum, margbrotnum gæðum. Þeim forréttindum að eiga gæðastundir við mestu hugsanlegu þægindi á áreynslulausan, fágaðan, skilvirkan hátt, án truflana, óháð persónulegum smekk eða faglegum kröfum.

Nobis-hótelið er til húsa í tveimur sögulegum byggingum frá síðari hluta 19. aldar við Norrmalm-torgið í miðborg Stokkhólms. Hótelið býður upp á 201 herbergi með öllum þeim þægindum og þjónustu sem hægt er að hugsa sér, hvort sem gestir eru að ferðast sér til ánægju eða í viðskiptaerindum. Markmið okkar er að gestir okkar njóti afburða þjónustu á öllum sviðum – og aðeins meira til. Á hótelinu okkar eru engir staðlar og engin verkferli, því við gerum einfaldlega allt sem þarf til að gera upplifun okkar gesta einstaka og ógleymanlega.

Það er hin rómaða, sænska arkitektastofa Claesson Koivisto Rune sem hannaði Nobis-hótelið. Hönnunarhugmyndin byggir á einstakri skilvirkni, fallegu útliti, þægindum og dásamlegum andblæ og stíllinn er samtímalegur og fallegur, en einkennist um leið af tímalausri, sígildri fágun. Efniviðurinn er einkum náttúrulegur og í hæsta gæðaflokki og áhrifin eru litir, yfirbragð og einkenni sænsku höfuðborgarinnar, sem einnig eru heimkynni konungsfjölskyldunnar.

Nobis-hótelið er aðili að Design Hotels™.

Nýr þungamiðja Stokkhólms

Á Nobis-hótelinu ert þú í sjálfu hjarta borgarinnar, þar sem allir helstu veitingastaðir, verslanir, söfn, kennileiti og skemmtistaðir sem Stokkhólmur hefur að bjóða eru á næsta leiti.

Hótelið er með stórt almenningssvæði, eða yfir 800 fermetra, og þar eru m.a. glæsilegi ítalski veitingastaðurinn okkar, Caina, rúmgóða setustofan okkar – sem við köllum gjarnan „nýju stofu Stokkhólms“, The Gold Bar, bar þar sem gestir slaka á síðdegis og á kvöldin og lítill veitingastaður í bistró-stíl sem býður upp á franska hádegis- og kvöldverðarrétti og drykki.

Þessi almenningssvæði skapa hlýlegt og spennandi rými í miðborginni og eru vettvangur iðandi mannlífs – ekki aðeins fyrir gestina, heldur einnig alla íbúa Stokkhólms. Þegar þú dvelur á Nobis-hótelinu ert þú í miðju alls sem gerist í Stokkhólmi.

Nobis Hotel Stokkhólmi

Norrmalmstorg 2-4

111 86 Stokkhólmur

Svíþjóð

Símanúmer
+4686141000
Netfang
Vefsvæði
www.nobishotel.se

DUX um allan heim

Frægustu hótel í heimi velja DUX

Skoða fleiri samstarfshótel