Sleppa og fara á aðalsíðu

Rúm

DUX 31

Sérhannaður rúmbotn með stillanlegum þægindasvæðum.

DUX 31

DUX 31 er grindarlaus dýna með DUX-gormakerfinu, þar sem þúsundir samtengdra gorma veita einstakan stuðning. Einstaka hlutaskipta svefnkerfið okkar veitir einnig mikla möguleika á að sérstilla þægindin.

  • DUX-gormakerfi
  • OEKO-TEX
  • Pascal-kerfi
  • Sustainable Comfort

Eiginleikar

  • Gormadýna með náttúrulegum latexsvampi og tvöföldum gormum
  • Tvö lög af gormum: annað lagið er með 10 cm gormum og hitt lagið er með 12 cm gormum
  • Auðvelt er að breyta stillingum þægindasvæða Pascal-kerfisins úr mjúku í mjög stíft
  • 90 x 200 cm DUX 31-rúm er með 2.004 gorma
  • Innra þægindalag úr náttúrulegum efniviði sem hægt er að skipta um
  • 33 cm hæð dýnu

Lýsing

DUX 31 er svipað í hönnun og DUX 30 en er ekki með hina einkennandi innri harðviðargrind. Það er þó sérlega þægilegt, þökk sé tveimur nýjungum í DUX. Annars vegar eru það einkaleyfisvarðir samfelldir gormar sem veita sveigjanlegan stuðning sem lagar sig að hreyfingum þínum á nóttunni. Hins vegar er það hlutaskipta Sustainable Comfort-hönnunin sem byggist á okkar rómaða Pascal-kerfi og gefur færi á að breyta rúminu án minnstu vandkvæða til að koma til móts við þarfir hvers og eins.

DUX 31 er dýna sem er sérhönnuð til að henta með ákveðnum rúmgrindum.

Mál

Width (cm) Length (cm)
80cm 200cm
90cm 200cm
100cm 200cm
105cm 200cm
120cm 200cm
140cm 200cm
160cm 200cm
180cm 200cm
200cm 200cm
210cm 200cm
96,5cm 203cm
152cm 203cm
193cm 203cm
80cm 210cm
90cm 210cm
100cm 210cm
105cm 210cm
120cm 210cm
140cm 210cm
160cm 210cm
180cm 210cm
200cm 210cm
210cm 210cm
Name Width (inch) Length (inch)
Twin Long 38" 80"
Queen 60" 80"
Cal. King 71" 83"
King 76" 80"

Niðurhal

Sérsniðið rúm

Við viljum að rúmið þitt sé þinn griðastaður. Þess vegna velur þú alla íhluti þess, allt frá dýnu, höfðagafli og yfirdýnu til fótanna. Gerðu DUX persónulegt!

Finna verslun Svona geturðu sérsniðið þitt rúm

Óviðjafnanleg þægindi

Leyndarmálið okkar hjá DUX er tækni. Markmið okkar er að tryggja besta hugsanlega svefn, með áherslu á rétta líkamsstöðu og bættan djúpsvefn. Við erum sífellt að þróa gormatæknina okkar og nýtum okkur þaulprófaðar tæknilausnir til að gera DUX-rúmin ótrúlega þægileg.

Nýsköpun DUX

Sjálfbært handverk

Sérlega endingargóð efni, framleidd samkvæmt ströngustu gæðakröfum um umhverfisáhrif og með sérsníðanlegum eiginleikum. Við höfum sjálfbærni að leiðarljósi á öllum framleiðsluþrepum hverrar vöru frá DUX. Endingartími húsgagnanna okkar og rúmanna byggir á stefnunni um að „Skipta út, endurnýja og endurbyggja“.

Sjálfbærni, gæði og mikil ending

Sjá einnig

Hlutaskipta svefnkerfið okkar

Fullkomin sérstilling

Sustainable Comfort-hönnunin er byggð á þremur mismunandi svefnþáttum og býður þér upp á óviðjafnanlega valkosti til að stilla stuðning rúmsins. Þetta kerfi gerir þér einnig kleift að uppfæra eða skipta um íhluti eftir því sem þarfir þínar breytast og endurnýja og auka þannig þægindi rúmsins í áratugi.

Sjá alla íhluti

DUX Sustainable Comfort

Nýsköpun frá okkur

Kynntu þér einstaklingsmiðaða svefnupplifun þar sem bæði vellíðan þín og náttúruvernd eru í fyrirrúmi. Nýjasta kynslóð hins rómaða DUX-rúms býður bæði upp á einstaklingsmiðað, hlutaskipt svefnkerfi sem hægt er að sérsníða og dásamlegan lúxus með náttúrulegum efniviði.

Skoðaðu öll rúm Kynntu þér Sustainable Comfort